SKÓLAREGLUR
Markmið skólareglna er að stuðla að jákvæðu og uppbyggilegu námsumhverfi þar sem öll geta notið sín.
- Nemendum og kennurum ber að mæta stundvíslega í allar kennslustundir.
Tilkynna þarf forföll til viðkomandi kennara eða í síma Domus vox: 511-3737
- Veikist kennari og tími fellur niður, er reynt að hafa samband við nemandann eða foreldra/forráðamanna eins fljótt og hægt er. Skólanum er ekki skylt að bæta upp einstakar kennslustundir en ef veikindin dragast lengur en tvær vikur útvegar skólinn forfallakennara.
- Nemendum ber að sinna heimaverkefnum og æfingum af samviskusemi. Æfingin skapar meistarann.
- Notkun farsíma er bönnuð í kennslustundum.
- Sýnum samnemendum, kennurum og starfsfólki kurteisi – virðinu – kærleika
- Förum vel með húsnæði og búnað skólans.
- Nemendum ber að taka virkan þátt í tónleikum og sameiginlegum verkefnum eftir því sem við á.
- Einnig skal mæta á alla tónfundi, samsöngstíma / kóræfingar og tónfræðatíma sem nemendum er ætlað.
- Neysla matvæla bönnuð í kennslustundum.
- Skilmálar skólans eru samþykktir við skráningu. Skilmála má finna hér fyrir neðan.
Gagnkvæm virðing, ábyrgð og jákvæð samskipti eru grunnforsendur alls skólastarfs við Söngskólann Domus vox.
SKILMÁLAR
- Skráning
Skráning í Söngskólann Domus Vox fer fram í gegnum Sportabler.
Með skráningu staðfestir nemandi eða forráðamaður að hann hafi kynnt sér skólareglur, skilmála og gildandi gjaldskrá skólans og samþykki þau.
- Skólagjöld
Skólagjöld eru ákveðin samkvæmt gildandi gjaldskrá Söngskólans Domus Vox og eru birt áður en kennsla hefst.
Greiðendur geta nýtt frístundastyrk sveitarfélaga þar sem það á við. Skólagjöld skulu greidd samkvæmt þeim gjalddögum og greiðsluskilmálum sem fram koma við skráningu í Sportabler.
3. Námsþátttaka
Nemendur skuldbinda sig til að mæta reglulega í kennslu, sinna heimaverkefnum og taka þátt í tónleikum, samsöngstímum, tónfundum og öðrum verkefnum sem eru hluti af náminu.
4. Persónuvernd
Persónuupplýsingar sem veittar eru við skráningu í Sportabler eru eingöngu notaðar vegna umsýslu náms, samskipta við nemendur og forráðamenn og annarrar lögmætrar starfsemi skólans.
Meðferð persónuupplýsinga fer fram í samræmi við gildandi persónuverndarlöggjöf.
5. Ljósmyndir og myndefni
Við tónleika, viðburði og í skólastarfi getur Söngskólinn Domus Vox tekið ljósmyndir eða myndskeið í kynningarskyn
Við skráningu í Sportabler geta nemendur eða forráðamenn samþykkt eða hafnað slíkri myndatöku og birtingu. Samþykki má afturkalla hvenær sem er með skriflegri beiðni til skólans.
- Breytingar á kennslu
Söngskólinn Domus Vox áskilur sér rétt til að gera nauðsynlegar breytingar á stundaskrá, kennurum eða skipulagi kennslu ef sérstakar aðstæður krefjast þess. Leitast verður við að lágmarka áhrif slíkra breytinga á námi nemenda.
- Gildistaka
Þessir skilmálar taka gildi þegar skólinn hefur staðfest skráningu nemanda í Söngskólann Domus Vox og gilda á meðan nemandi stundar nám við skólann.