Skólinn
Söngskólinn Domus Vox var stofnaður haustið 2000 af Margréti J. Pálmadóttur söngkonu og kórstjóra.
Sérstaða skólans er kórastarf stúlkna og kvenna og samstarf þeirra á milli með einstöku tónleikahaldi.
Einsöngsdeild
Domus Vox þjónustar nemendur innan og utan kóranna frá forskólaaldri til fullorðins ára.
Öflugt barna- og unglingastarf veitir nemendum nauðsynlega undirstöðu til að taka þátt í söngstarfi, sem einstaklingur eða í hópum.
Undirstaða námskrafna er aðalnámsskrá tónlistarskóla auk áralöngu kórastarfi Margrétar.
Hvert barn á að geta fundið sér leið að framhaldi í söngnámi alveg til fullorðinsára. Nemendur koma fram reglulega innan skólans og utan með misstóru tónleikahaldi.
Til að ná þessum markmiðum eru eftirfarandi deildir starfandi við sönghúsið Domus Vox:
Söngnám:
Fornám: syngjandi forskóli / kór 1, 2 og 3, 5-12 ára.
Grunndeild: unglingastig / kór 4, 12-14 ára / grunnstig 14 ára og eldri.
Miðdeild: 15 ára og eldri.
Framhaldsdeild: 18 ára og eldri, lýkur með opinberum tónleikum.
Kirkjudeild AURORA: Kammerkór innan Domus vox. 16 – 30 ára
Námskeið: Skapandi söngstarf í ýmsum tónlistarstílum.
Einkatímar á söngkortum: fyrir allan aldur.
Syngjandi forskóli: fyrir börn 5-6 ára
Stúlknakór Reykjavíkur: fyrir stúlkur á aldrinum 7-15 ára.
Aurora: fyrir 16-30 ára
Cantabile: kvennakór fyrir konur frá 50 ára aldri.
Vox feminae: kvennakór fyrir konur frá 25 ára aldri.
HappyHour kórinn: kvennakór fyrir konur frá 25-40 ára.